Fara í efni

Markaðsátak í Evrópu 2009 - Samstarfsverkefni til markaðssetningar

Herðubreið
Herðubreið

Ferðamálastofa hefur farið yfir umsóknir um samstarfsverkefni undir formerkjum sérstaks markaðsátaks í Evrópu 2009. Alls barst 71 umsókn að í verkefni að fjárhæð um 700 milljónir króna.

Úthlutað var 70 milljónum króna til 17 verkefna. Við mat á umsóknum var tekið tillit til þeirra krafna sem fram komu í auglýsingu en hópur starfsmanna Ferðamálastofu vann að matinu. Í auglýsingu sagði meðal annars: "Heildarráðstöfunarfé Ferðamálastofu til samstarfsverkefnanna eru 70 milljónir króna, sem skiptast munu með eftirfarandi hætti:

  • Til þriggja verkefna, eitt á hverju markaðssvæði, þar sem framlag Ferðamálastofu nemur 10 millj.kr. að hámarki.
  • Til fjögurra verkefna, þar sem framlag Ferðamálastofu nemur 5 millj.kr. að hámarki.
  • Til tíu verkefna, þar sem framlag Ferðamálastofu nemur 2 millj.kr. að hámarki."

Auglýsinguna má skoða hér.

Eftirtaldir aðilar hafa verið valin til samstarfs:

Allt að 10 milljónir

Samstarfsaðili

Markaður

Kynningarátak um Ísland í Bretlandi

Discover the World

Bretland

?On-line? markaðsherferð í Skandinavíu

Iceland Express

Skandinavía

City Light Poster Campaign

Icelandair Evrópu

Mið-Evrópa

Allt að 5 milljónir

On-line markaðsherferð á meginlandi Evrópu

Iceland Express

Mið-Evrópa

Átak vegna hvataferða / MICE markaður

Icelandair Skandinavíu

Skandinavía

Iceland UK outdoor promotion

Icelandair Bretlandi

Bretland

Sagatrails in Iceland

Samtök um sögutengda ferðaþjónustu

Allir

Allt að 2 milljónir

Sölu og kynningarherferð 2009

Volters Reisen

Mið-Evrópa

Islanda; Aurora Boreale & sorgenti calde

Island Tours Italy

Mið-Evrópa

Iceland Campaign

Troll Tours