Fara í efni

Margir nýir kaupendur á Vestnorden

Margir nýir kaupendur á Vestnorden

Undirbúningur fyrir Vestnorden ferðakaupstefnuna í Nuuk í Grænlandi 21.-22. september gengur vel. Útlit er fyrir að margir nýir kaupendur sæki Vestnorden heim að þessu sinni.

Grænlendingar sjá um framkvæmd Vestnorden í ár og réðust þeir í talsverða markaðsherferð í þeim tilgangi að ná til fleiri kaupenda. Það virðist hafa skilað tilætluðum árangri því af tæplega 90 kaupendum sem skráðir voru um miðjan síðasta mánuð var þriðjungurinn nýir aðilar. Koma þeir frá rúmlega 20 löndum.

Eins og fram hefur komið býður Flugfélag Íslands upp á áætlunarflug og aukaflug vegna Vestnorden og er um að gera að bóka sem fyrst. Nánari upplýsingar um kaupstefnuna, skráning og annað, er á vestnorden.com