Fara í efni

Mannamót 2017 - Kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni

Markaðsstofur ferðaþjónustunnarMarkaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 19. janúar 2017 kl. 12:00 – 17:00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Mannmót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.

Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda og efla tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Skráning og gjald

Sýnendur greiða kr. 15.000. Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2016.

Gestir greiða ekki fyrir aðgang að sýningunni en þurfa samt að skrá sig.

Skráningu lýkur 12. janúar 2017 en allar nánari upplýsingar eru á markadsstofur.is