Fara í efni

Málþing um víkinga og víkingaímyndina

Víkingar
Víkingar

?Eins og sannir víkingar? er yfirskrift málþings um víkinga og víkingaímyndina sem hadið verður næstkomandi föstudag, 24. september. Málþingið er haldið í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands, sal 132, klukkan 13-17.

Víkingahugtakið hefur verið nokkuð til umræðu síðustu misseri, í ýmsu samhengi. Er hægt að skilgreina hugtakið ?víkingur? og hver er mynd Íslendinga nú til dags af víkingum? Hefur sú ímynd breyst síðustu ár og áratugi eða er hún óljós? Er nálgun fræðimanna ólík þeirri  mynd sem dregin er upp á sýningum eða innan ferðaþjónustunnar? Sjö fyrirlesarar fjalla um efnið frá ólíkum sjónarhornum og kynna verkefni sem tengjast víkingum.

Dagskrá.

Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins:
Söguþjóðin og víkingaímyndin.

Gunnar Karlsson, prófessor emeritus: Ísland: athvarf uppgjafarvíkinga.

Helgi Þorláksson, prófessor í sagnfræði við HÍ: Víkingar, ný ímynd og
Evrópusambandið.

Sverrir Jakobsson, aðjunkt í sagnfræði við HÍ: ?I am not an Eskimo. I am a
Viking?. Víkingar og íslensk sjálfsmynd á 20. öld.

Elisabeth Ward, forstöðumaður Víkingaheima í Reykjanesbæ: Making ?Vikings?
Work ? Sýningartexti og almenningsskilningur.

Rögnvaldur Guðmundsson, ferðamálafræðingur: Öxi Gauks á Stöng: reynsla af
Evrópuverkefninu Destination Viking ? Sagalands.

Ole J. Fursett framkvæmdastjóri Sør-Troms Museum: Childrens Viking
Festival Trondenes - Learning by doing.

Að loknum framsögum verða umræður.

Að málþinginu standa Minjasafn Reykjavíkur í samvinnu við námsleið í hagnýtri menningarmiðlun á Hugvísindasviði HÍ og Samtök um sögutengda ferðaþjónustu.

Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.