Fara í efni

Málþing um ferðamál í Dalvíkurbyggð

Ferðafélag Dalvíkurbyggðar, Ferðatröll, undirbýr nú málþing um ferðamál í byggðarlaginu í samvinnu við Ferðamálasetur Íslands, Framfarafélag Dalvíkurbyggðar og atvinnumálanefnd. Tilgangurinn er að upplýsa um og kanna nánar möguleika ferðaþjónustu í Dalvíkurbyggð. Einnig að efla tengsl ferðaþjónustunnar við aðrar atvinnugreinar og skoða hver hagræn áhrif atvinnugreinarinnar eru fyrir svæðið.

Athygliverðir fyrirlesarar
Málþingið verður haldið laugardaginn 21. apríl nk. í sal Dalvíkurskóla (sjá nánari dagskrá á www.dalvik.is). Þar verður kunnáttufólk með athygliverða fyrirlestra um það m.a. hvernig maður byggir upp ferðaþjónustu í dreifbýli, um samlegðaráhrif og tengingar við annað atvinnulíf, um möguleika okkar vegna sérstöðu og menningar svæðisins, um fjallamennsku og heilsutengda ferðaþjónustu ofl.

Meðal þeirra sem flytja erindi eru Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildarinnar á Hólum og Edward Huijbens, forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands. Þá er gert ráð fyrir því að fólk vinni saman í hópum að hagnýtum viðfangsefnum svo sem því hvernig þau tækifæri sem við blasa verða sem best nýtt, hvaða ímynd við viljum að svæðið hafi og til hvernig ferðamanna við viljum helst ná. Ef áhugi verður fyrir hendi er fyrirhugað að fjalla sérstaklega um hvalaskoðun og sjóstöng.

Grímseyjarferja og Héðinsfjarðargöng
Það er mikilvægt að við skoðum sameiginlega hvaða möguleikar eru helstir í ferðaþjónustu í byggðarlaginu og gerum okkur þá jafnframt grein fyrir því hvernig breyttar aðstæður snerta samfélagið. Ný Grímseyjarferja sem gefur nýja möguleika, er væntanleg í ár.

Og eftir tvö ár opna Héðinsfjarðargöngin. Þessir nýju samgöngumöguleikar eru tækifæri fyrir ferðaþjónusaðila og önnur þjónustufyrirtæki í Dalvíkurbyggð og er því sameiginlegt verkefni ferðaþjónustuaðila og atvinnumálanefndar að skoða möguleikana sem í þessu felast og að gera eins mikið úr þeim fyrir Dalvíkurbyggð til framtíðar. Málþingið er m.a. liður í þeirri viðleitni.

Takið daginn frá
Málþingið er öllum opið og eru allir þeir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu almennt hvattir til að mæta. Einkum er mikilvægt að þau sem starfa í ferðaþjónustu eða tengjast henni á einhvern hátt mæti og taki þátt í þessari vinnu. Og tengingarnar eru margvíslegar ef að er gáð. Fyrst og fremst er hér um að ræða atvinnumöguleika og þar með aukna fjölbreytni í atvinnulífi svæðisins.  (Fréttatilkynning)