Fara í efni

Málstofa um umhverfisvæna ferðaþjónustu

Reykjavíkurborg stendur fyrir málstofu um umhverfisvæna ferðaþjónustu í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns, fimmtudaginn 7. apríl kl. 08:30-10:00.

Dagskrá:
8.30. Einar Örn Benediktsson, formaður menningar og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar, opnar málstofuna og tekur stöðu fundarstjóra.
8.35. Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu kynnir Vakann, nýtt gæðakerfi í ferðaþjónustu. Í erindi sínu leggur hann sérstaka áherslu á umhverfisþátt gæðakerfisins.
8.55 Kaffihlé
9.10 Sif Gunnarsdóttir forstöðumaður Höfuðborgarstofu kynnir grænar áherslur í ferðamálastefnumReykjavíkurborgar. Ómengað umhverfi og nýting hreinnar orku eru mikilvægir lyklar að heilsuferðaþjónustu í stefnumótun Reykjavíkjavíkur 2011-2020.
9. 30. Sigríður Ólafsdóttir rekstrarstjóri Farfuglaheimilana í Reykjavík kynnir helstu áskoranir þess að vera grænn og vænn í ferðaþjónustu en Farfuglaheimilið í Laugardal var eitt fyrsta fyrirtækið í íslenskri ferðaþjónustu til að verða sér úti um umhverfisvottun – Svansmerkingu – árið 2004 og fékk umhverfisverðlaun Ferðamálastofu á liðnu ári.
9.50 Spurningar og umræður
10.00. Málstofulok

Allir velkomnir