Fara í efni

Magnús Oddsson ferðamálastjóri lætur af embætti í lok ársins

Magnus Odds 200 pix
Magnus Odds 200 pix

?Ég hafði eðlilega velt því fyrir mér hvenær væri rétti tíminn til að ljúka þessum áfanga. Núna fer það saman að mínu þriðja skipunartímabili lýkur í árslok og ég er að nálgast svokallaða 95 ára reglu ríkisstarfsmanna. Loks er stofnunin og embættið að færast til í stjórnkerfinu. Þegar ég fór yfir málið og þetta þrennt fór saman á svipuðum tíma þá tók ég þá ákvörðun að þetta væri ágætis tímapunktur til að sækja ekki um starfið að nýju nú þegar það er laust um áramót, þetta væri orðið gott,? segir Magnús.

?Þetta hefur verið mjög ánægjulegur tími að taka þátt í þróun og uppbyggingu atvinnugreinarinnar í þessi tæp 18 ár sem ég hef verið í stofnuninni. Ég skil við stofnun sem er með fjölda sérfræðinga á hinum ýmsu sviðum ferðaþjónustunnar og vinnur mikið og gott starf fyrir þá sem þeir eiga að þjóna. Þetta starfsfólk hefur verið að fá fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, sem sýnir að verk þeirra eru metin að verðleikum? bætir hann við.

Magnús Oddsson hefur unnið í ferðaþjónustu í rúm 33 ár. Byrjaði þann feril hjá ferðaskrifstofu 1974, vann í flugrekstri í 10 ár og hefur undanfarin tæp 18 ár unnið að ferðamálum á opinberum vettvangi og verið ferðamálastjóri frá árinu 1993.

Magnús hefur setið í miklum fjölda innlendra og erlendra stjórna, ráða og nefnda tengdum ferðaþjónustu undanfarna áratugi. M.a var hann formaður og stýrði vinnu við gerð fyrstu opinberu stefnumótunar í ferðamálum, sem gilti 1996-2005, einnig við gerð ferðamálaáætlunar 2006-2015 og endurskoðun hennar á þessu ári. Þá hefur hann verið formaður í Ferðamálaráði Norðurlanda, Ferðamálaráði Vestur Norðurlanda og Scandinavian Tourism Incooperation, svo og setið í framkvæmdastjórn Ferðamálaráðs Evrópu. Magnús sat lengi í stjórn Ráðstefnuskrifstofu Íslands og var þar formaður auk setu í Náttúruverndarráði svo nokkur atriði séu nefnd.