Fara í efni

Lokun neðri gönguleiðar að Gullfossi

Gullfosskort
Gullfosskort

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka tímabundið neðri gönguleið að Gullfossi vegna mikillar hættu sem getur skapast þar yfir vetrartímann af völdum hálku og snjóalaga.  Stígnum verður lokað frá og með 21.október til 31.mars og verður sett upp skilti sem útskýrir lokunina og varað við þeirri hættu sem þarna getur skapast á íslensku, ensku, frönsku og þýsku. 

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun kemur fram að það sé eindregin ósk stofnunarinnar að þessari lokun verði mætt með skilningi . Frekari upplýsingar fást hjá Ólafi A Jónssyni hjá deild náttúruverndar á Umhverfisstofnun.

Meðfylgjandi loftmynd sýnir hvar skiltunum verður komið fyrir við upphaf neðri göngustígs.