Fara í efni

Lokun neðri gönguleiðar að Gullfossi

Lokun gullfoss
Lokun gullfoss

Umhverfisstofnun hefur ákveðið að loka tímabundið neðri gönguleið að Gullfossi vegna mikillar hættu sem getur skapast þar yfir vetrartímann vegna hálku og snjóalaga.

Stígnum verður lokað frá og með 9. desember og þar til aðstæður verða betri. Sett verður upp skilti sem útskýrir lokunina og varar við þeirri hættu sem þarna getur skapast. Texti verður á íslensku, ensku, frönsku og þýsku. Meðfylgjandi loftmynd sýnir hvar skiltunum verður komið fyrir við upphaf neðri göngustígs.

Það er eindregin ósk að þessari lokun verði mætt með skilningi. Nánari upplýsingar fást hjá Aðalbjörgu Birnu Guttormsdóttur hjá deild náttúruverndar á Umhverfisstofnun.