Fara í efni

Lokaverkefnisverðlaun Rannsóknamiðstöðvar ferðamála

logo rmf
logo rmf

Rannsóknamiðstöð ferðamála veitir árlega 100 þúsund króna verðlaun fyrir framúrskarandi lokaverkefni um ferðamál sem unnið er af nemanda við háskóla hér á landi. Verða þau nú afhent í sjötta sinn á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), 24. mars næstkomandi. Dómnefnd er skipuð stjórn og forstöðumanni RMF.

Til að verkefni komi til greina þarf það að fjalla um ferðamál og ferðaþjónustu á Íslandi. Skal því hafa verið skilað á árinu 2010 og hlotið fyrstu einkunn. Einnig er horft til þess:

  • Að verkefnið sé frumlegt og leiði hugsanlega til möguleika á nýsköpun í ferðaþjónustu á Íslandi.
  • Að verkefnið uppfylli allar þær kröfur sem gerðar eru alþjóðlega til rannsóknarritgerða og sýni fagleg vinnubrögð í hvívetna.
  • Metið er eftir     
       + afmörkun viðfangsefnis
       + skýrleika rannsóknarspurninga
       + Innra samhengi
       + Byggingu texta
       + Hvort ritgerð byggi á sjálfstæðri rannsóknarvinnu
       + Hversu djúpt er kafað í efnið
       + Hversu læsilegt og vel frágengið verkið er

Eintak af lokaverkefnum skulu send Edward H. Huijbens, forstöðumanni Rannsóknamiðstöðvar ferðamála, Borgum v/Norðurslóð, 600 Akureyri.

Nánari upplýsingar eru á www.rmf.is, eða hjá forstöðumanni; edward@unak.is