Fara í efni

Loftferðasamningur við Kína skapar grundvöll fyrir áætlunarflug

Kinamurinn
Kinamurinn

Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, og Yang Yuanyuan, flugmálaráðherra Kína, undirrituðu í gær loftferðasamning á milli Íslands og Alþýðulýðveldisins Kína. Samningurinn, sem var áritaður í Peking 26. nóvember sl., heimilar tilnefndum flugfélögum hvors ríkis um sig að stunda reglubundið áætlunarflug með farþega, farangur, frakt og póst á milli landanna.

Hvort ríki um sig getur tilnefnt þrjá áfangastaði í hvoru landi auk þriggja staða til millilendingar á leiðinni. Sérstakt samkomulag við loftferðasamninginn gerir einnig ráð fyrir heimildum fyrir óreglubundinni þjónustu milli landanna tveggja og heimild til handa flugfélögum hvors ríkis um sig til að halda uppi flugþjónustu á tilgreindum leiðum í samvinnu við flugfélög frá öðrum ríkjum, s.s. með sameiginlegum flugnúmerum eða annarskonar samvinnu. Samningurinn og samkomulagið taka gildi þegar við undirritun.

Skapar grundvöll fyrir áætlunarflug
Loftferðasamningurinn skapar grundvöll fyrir áætlunarflug á milli landanna, auk þess sem hann er ein meginforsenda útrásar íslenskra frakt-og farþegaflugfélaga í þessum heimshluta. Í Kína er sjötta mesta flugumferð í heimi og hvergi er eins mikill vöxtur í fraktflutningum og í Asíu. Í viðtölum fjölmiðla við talsmenn Atlanta og Flugleiða hefur komið fram að þeir telja afar jákvætt að samningurinn skuli hafa tekið gildi og hann skapi grundvöll fyrir félögin til að leita sér verkefna á þessu svæði.

Samningur við fleiri ríki í bígerð
Undirritun samningsins við Kína er afrakstur heimsóknar íslenskrar sendinefndar, skipaðri embættismönnum og fulltrúum flugrekenda, til Asíu í nóvember ásíðasta ári, en sendiráð Íslands í Peking sá um undirbúning heimsóknarinnar. Í þeirri ferð var loftferðasamningur við Suður-Kóreu einnig áritaður og er búist við að hann verði undirritaður á næstu mánuðum. Þá er áætlað að ljúka samningaviðræðum um loftferðasamninga við Singapúr, Hong Kong og Macau á þessu ári. Jafnframt hafa íslensk stjórnvöld nýlega lagt til við 24 önnur ríki að gerður verði loftferðasamningur milli þeirra og Íslands og afhent þeim samningsdrög í því skyni. Ríkin eru í Asíu, Afríku, Mið- og Suður-Ameríku og Evrópu.