Fara í efni

Ljósmyndasamkeppni EDEN-áfangastaða

Myndirnar tengist siglingu á kajak eða kanó
Myndirnar tengist siglingu á kajak eða kanó

Allir geta tekið þátt í ljósmyndasamkeppni sem nú er í gangi þar sem senda á inn myndir frá svokölluðum EDEN-áfangastöðum. Myndirnar þurfa að tengjast siglingu á kajak eða kanó.

Evrópskir gæðaáfangastaðir

EDEN stendur fyrir „European Destination of Excellence“ og þýtt hefur verið sem Evrópskir gæðaáfangastaðir. Markmiðið er að vekja athygli á gæðum, fjölbreytileika og sameiginlegum einkennum Evrópskra áfangastaða og kynna til sögunnar nýja, lítt þekkta, áfangastaði vítt og breitt um Evrópu þar sem áhersla er lögð á ferðaþjónustu í anda sjálfbærni.

Íslenskir EDEN-áfangastaðir

Fjórir Íslenskir áfangastaðir hafa hlotið útnefningu, þ.e. Vestfirðir, Stykkishólmur, Húsavík og Borgarfjörður eystri. Myndirnar frá Íslandi þurfa að tengjast þessum stöðum.

Einfalt að taka þátt

Þátttaka er einföld en hún fer fram á Facebook-síðu EDEN. Til að senda inn mynd þarf einfaldlega að „líka við“ síðuna (engin krafa um að deila eða neitt slíkt). Verðlaunin eru tveggja daga kanó sigling fyrir tvo á Peene-ánni í Þýskalandi, sem einmitt er EDEN-áfangastaður.

Allar nánari upplýsingar og þátttaka er á Facebook-síðu EDEN:
https://www.facebook.com/EDEN.destinations

Nánari upplýsingar um EDEN á Íslandi