Fara í efni

Leiðsögunám á háskólastigi

Leiðsögunám
Leiðsögunám

Leiðsögunám á háskólastigi hófst hjá Endurmenntun Háskóla Íslands síðastliðið haust og fékk strax góðar viðtökur. Námið er fyrir alla þá sem vilja búa sig undir starf leiðsögumanns á Íslandi.

Megináhersla þess er á hagnýta þekkingu og þjálfun á sviði leiðsagnar með ferðamenn. Námið er 60 (ECTS) einingar á grunnstigi háskóla og frá haustmisseri 2009 kennt á tveimur misserum. Það er viðurkennt sem aukagrein með ferðamálfræði svo og í hugvísindadeild Háskóla Íslands. Útskrifaðir nemendur úr Leiðsögunámi á háskólastigi hafa einnig inngöngurétt í fagfélag Félags leiðsögumanna.
 
Umsóknarfrestur til 11. apríl
Næsti hópur fer af stað í ágúst 2009 og er fyrri umsóknarfrestur til 11. apríl. Kennt er tvisvar sinnum í viku frá kl. 16:10 ? 19:55, auk tungumálatíma. Mögulegt er að taka námið hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi. Að kennslu námskeiðanna koma háskólakennarar úr fjölmörgum deildum Háskóla Íslands, reyndir leiðsögumenn auk gestafyrirlesarara úr fagi ferðamennsku og leiðsagnar á Íslandi.

Sjá nánar um námið á vef Endurmenntunar: Leiðsögunám á háskólastigi í Endurmenntun Háskóla Íslands