Fara í efni

Leiðbeiningarrit um uppbyggingu ferðamannastaða

Samstarf um útgáfu
Samstarf um útgáfu

Ferðamálastofa, Framkvæmdasýsla ríkisins og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa tekið höndum saman um gerð leiðbeiningarrits um uppbyggingu ferðamannastaða á Íslandi. Leitast verður eftir að horfa til heildarmyndar og sérsto?ðu staða, svo unnt verði að draga fram þá upplifun sem þar er að finna.

Í leiðbeiningarritinu verða skilgreindar raunhæfar leiðir og aðferðir við uppbyggingu ferðamannastaða. „Meginmarkmið verkefnisins er að bæta upplifun og umhverfisleg gæði ferðamannastaða á Íslandi með sjálfbæra þróun og menningarleg gildi að leiðarljósi. Áhersla er lögð á vistvæna hugmyndafræði, vandaðar greiningar og eflingu gæðavitundar ferðaþjónustuaðila, almennings og aðila sem að ákvörðunartöku koma,“ eins og segir orðrétt í samstarfssamningi milli þessara aðila.

Verkefnið byggir að hluta á styrkumsókninni „Vandaðir ferðamannastaðir, sjálfbær ferðaþjónusta“ sem unnin var árið 2009 af Sigríði Magnúsdóttur arkitekt FAÍ, Sigríði Sigþórsdóttur arkitekt FAÍ og Borghildi Sölvey Sturludóttur arkitekt FAÍ og nema í umhverfisstjórnun við HÍ, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands og Ferðaþjónustu bænda.

Gert er ráð fyrir að ritið komi út nú í haust.