Leiðarvísir fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu
Á dögunum kom út nýr leiðarvísir sem ætlað er að hjálpa norrænum ferðaþjónustufyrirtækjum að hefja nýsköpunarvegferð sína. Ritið nefnist A Nordic Guidebook for Tourism Innovation og samanstendur af hagnýtum tólum, aðferðum, leiðum og góðum ráðum. Ritið er gefið út af Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni (Nordic Innovation), stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.
Hvernig stuðlum við að nýsköpun í ferðaþjónustu?
Leiðarvísirinn byggir á reynslu tveggja ára nýsköpunarverkefnis, X-Nordic Travel Contest. Meira en 300 norræn ferðaþjónustufyrirtæki og stofnanir tóku þátt í verkefninu og komu að vinnustofum, þróun hugmynda, hönnunarsprettum, könnunum, kortlagningartólum o.fl.
Innblástur fyrir fyrirtæki og sérfræðinga í ferðaþjónustu
A Nordic Guidebook for Tourism Innovation er sem fyrr segir hagnýt handbók sem sýnir hvernig nýsköpun á sér stað í ferðaþjónustu og býður upp á verkfæri, aðferðir og innblástur fyrir fyrirtæki og sérfræðinga í ferðaþjónustu.
Leiðarvísirinn fer meðal annars í:
- Hvernig má greina þau vandamál sem raunverulega skipta máli
- Að brúa bilið frá yfirborðsvandamálum yfir í stórar hugmyndir og raunverulegar lausnir
- Að rata um sprotaumhverfi ferðaþjónustu á Norðurlöndum
- Að tengja framsækin sprotafyrirtæki við ferðaþjónustugeirann