Fara í efni

Landnámssetrið fékk eyrarrósina

Eyrarrósin 2009
Eyrarrósin 2009

Landnámssetrið í Borgarnesi er handhafi eyrarrósarinnar 2009. Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er fyrir menningarverkefni á landsbyggðinni. Verndari viðurkenningarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem afhenti eyrarrósina á Bessastöðum í gær.

Þrjú verkefni voru tilnefnd til eyrarrósarinnar 2009: Eyrbyggja, sögumiðstöð í Grundarfirði; Landsnámssetur Íslands í Borgarnesi og Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi.  Með verðlaunagripnum, sem Steinunn Þórarinsdóttir gerði, fylgdi 1,5 milljóna króna fjárstyrkur til verkefnisins. Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands settu eyrarrósina á stofn.

Á myndinni eru stofnendur Landnámssetursins þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir.