Fara í efni

Landkynningarsvæði tekið í notkun í Leifsstöð

Landkynningarsvæði í Leifsstöð
Landkynningarsvæði í Leifsstöð

Landkynningarsvæði hefur verið tekið í notkun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Svæðið var formlega opnað síðastliðinn fimmtudag og klipptu Kristján L. Möller samgönguráðherra og Jón Gunnarsson, formaður stjórnar FLE, á borða því til staðfestingar.

Svæðið er á neðri hæð í brottfararsal við enda ranans í stöðinni. Þar er á stórum skjá sýnd mynd um náttúru Íslands og undir er tónlist Hilmars Arnar Hilmarssonar. Í ávarpi Kristjáns L. Möller við opnunina kom meðal annars fram að tilgangurinn með landkynningarsvæðinu er að gefa ferðamönnum sem hafa viðdvöl í Leifsstöð á leið yfir hafið tækifæri til að kynnast broti af náttúru Íslands og með því ef til vill fá þá til að stöðva lengur í næstu ferð, segir m.a. í frétt á vef samgönguráðuneytisins.

Flugstöð Leifs Eiríkssonar og kynningarátakið Iceland Naturally greiddu kostnað við verkið en hönnun var í höndum Gagaríns, Árna Páls Jóhannssonar og Karls Óskarssonar. (Mynd af vef samgönguráðuneytisins)