Fara í efni

Kynningarfundur um heilsuferðaþjónustu á Íslandi

lóhó heilsusamtök
lóhó heilsusamtök

Iðnaðarráðherra og Samtök um heilsuferðaþjónustu á Íslandi bjóða á kynningarfund þann 4. nóvember næstkomandi á Hótel Loftleiðum, Víkingasal frá kl. 16:00-18:00.

Dagskrá:

16:00 Magnús Orri Schram formaður Samtaka um heilsuferðaþjónustu á Íslandi flytur stutt ávarp.

16:10 Sigurður Þorsteinsson frá Design Group Italy skýrir hugmyndafræði vörumerkis samtakanna „Ísland of Health“

16:40 Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra opnar heimasíðu Ísland of Health og tilkynnir um fyrirhuguð hvatningarverðlaun sem hún hyggst veita fyrir áhugaverða heilsuferðapakka.


Að lokinni dagskrá verða léttar veitingar í boði Iðnaðarráðuneytis.

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 3. nóvember til Sigrúnar Hlínar Sigurðardóttur, netfang: sigrun@icetourist.is