Fara í efni

Kynningarfundir um þróunarverkefni í menningartengdri ferðaþjónustu

Menn við foss 2
Menn við foss 2

Þróunarverkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu verða kynnt á fundum um allt land næstu daga. Verkefnið, sem fengið hefur nafnið Gáttir, er eins og fram hefur komið vöruþróunarverkefni sem hefur það að markmiði  að fjölga arðbærum vörum/þjónustu á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og vinna úr sérkennum staða á sviði menningar.

Verkefnið er til 2ja ára.

Kynningarfundirnir verða á eftirtöldum stöðum:

Vestmannaeyjar 10  júní Café María kl. 13:00-16:00
Ísafjörður 16. júní Hótel Ísafjörður kl. 09:30-12:30
Stykkishólmur 18. júní Hótel Stykkishólmur kl. 11:00-14:00
Varmahlíð 19. júní Hótel Varmahlíð kl. 10:00-13:00
Húsavík 20. júní Fosshótel Húsavík kl. 09:00-12:00
Seyðisfjörður 23. júní Hótel Aldan kl. 13:30-16:30
Höfn 24. júní Hótel Höfn kl. 13:00-16:00

Á fundunum fjalla sérfræðingar um menningartengda ferðaþjónustu, vöruþróun og frumkvöðlar í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu segja frá reynslu sinni, auk þess sem verkefnið verður kynnt ítarlega. Fundirnir eru opnir öllum  áhugasömum um vöruþróun á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.

Dagskrá:
1. Kynning á verkefni ? Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Impru á Nýsköpunarmiðstöð
2. Vöruþróunarferlið  - Heiður Björnsdóttir, ParX
3. Áfangastaðir í menningartengdri ferðaþjónustu - Háskólinn á Hólum
4. Uppbygging Landnámsseturs ? Kjartan Ragnarsson, Landnámssetrinu
5. Spurningar og umræður 

Frekari upplýsingar veita
Sigríður Ó. Kristjánsdóttir verkefnastjóri hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð í síma 450-4050 netfang: sirry@nmi.is eða Alda Þrastardóttir, verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu í síma 464-9990, netfang: alda@icetourist.is 

Nánari upplýsingar hér á vef Ferðamálastofu og hjá Impru.
   
Verkefnið er á vegum Iðnaðarráðuneytisins og er unnið af Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Ferðamálastofu