Fara í efni

Kynningarfundir um Landsskipulagsstefnu 2015-2026

©arctic-images.com
©arctic-images.com

Skipulagsstofnun hefur auglýst fundi þar sem Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026 verður kynnt en fyrsti fundurinn verður í Iðnó þriðjudaginn 25. febrúar næstkomandi klukkan 15:00-17:30.

Stefnt er að því að senda út kynningarhluta fundarins á vef landsskipulagsstefnu. Lýsingin verður jafnframt kynnt á kynningar– og samráðsfundum á eftirtöldum stöðum:

• Borgarnesi 27. febrúar kl. 14.00 -16.00, Bjarnarbraut 8
• Selfossi 28. febrúar kl. 15.00 - 17.00, Hótel Selfossi, Kirkjuvegi 2
• Egilsstöðum 3. mars kl. 15.00 - 17.00, Hótel Héraði, Miðvangi 1-7
• Ísafirði 4. mars kl. 15.00 - 17.00, Háskólasetri Vestfjarða, Suðurg. 12
• Akureyri 5. mars kl. 15.00 -17.00, Hótel KEA, Hafnarstræti 87-89

Dagskrá funda:

1. Lýsing Landsskipulagsstefnu 2015-2026
Kynning á lýsingu
Umræður og fyrirspurnir

2. Hverjar eru þínar áherslur fyrir Landsskipulagsstefnu 2015-2026?
Hópavinna, umræður um áherslur
Samantekt hópavinnu

Fundirnir er opnir öllum, þeir sem vilja taka þátt eru beðnir að tilkynna það á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is.

Hægt er að nálgast lýsinguna á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.