Fara í efni

Kynningarfundir um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Ferðamálastofa og sambönd sveitarfélaga á viðkomandi svæðum standa sameiginlega að kynningarfundum um sjóðinn. Fundað verður á Vestfjörðum og Norðvesturlandi þriðjudaginn 17. október n.k.

Á Vestfjörðum verður fundur á Ísafirði í fundarsal Þróunarsetursins, Árnagötu 2-4, kl. 13:00-14:30.

Á Norðvesturlandi verða tveir fundir, á Hótel Laugarbakka kl. 10:30 - 12:00 og á Hótel Varmahlíð kl. 14:00 - 15:30.

Starfsmenn Ferðamálastofu munu m.a. fara yfir:

  • Breytingar á sjóðnum vegna breyttra laga og reglugerðar.
  • Hverskonar verkefni eru styrkhæf og hver ekki.
  • Gæðamat sjóðsins og nýtt gæðamatsblað.
  • Umsóknarferlið og umsóknareyðublað.
  • Hvernig er sótt um styrki úr sjóðnum?

Einkaaðilar, starfsmenn sveitarfélaga og sveitarstjórnarfólk er sérstaklega hvatt til þess að mæta.

Nánari upplýsingar um sjóðinn og yfirstandandi umsóknarferli má nálgast hér.