Fara í efni

Kynningarfundir fara vel af stað

Fundur Borgarnesi
Fundur Borgarnesi

Kynningarfundir Ferðamálastofu sem nú standa yfir hafa farið vel af stað. Í gær og fyrradag var fundað í Borgarnesi og Selfossi en í dag er verið á Egilsstöðum. Fundirnir eru öllum opnir sem áhuga hafa á að kynnast Ferðamálastofu og kynna sér möguleika til uppbyggingar á menningartengdri ferðaþjónustu.

Yfirskrift fundanna er "Hvað gerir Ferðamálastofa fyrir þig" og í þessari lotu eru fimm fundir eftir, eins og fram kemur hér að neðan. Í haust er síðan ætlunin að taka þráðinn upp að nýja og funda þá m.a. á Reykjanesi og Reykjavík.

22. maí  Egilsstaðir kl. 13:00 ? 15:30  Hótel Hérað 
23. maí  Höfn  kl. 10:00 ? 12:30  Hótel Höfn  
27. maí  Akureyri kl. 10:00 ? 12:30  Hótel KEA  
27. maí  Varmahlíð   kl. 14:00 ? 16:30  Hótel Varmahlíð
30. maí  Ísafjörður kl.10:00 ? 12:30  Hótel Ísafjörður 

Farið verður yfir starfsemi Ferðamálastofu og þjónustu stofnunarinnar við ferðaþjónustuaðila, en auk þess verða kynnt þróunarverkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu, sem Ferðamálastofa og Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands eru að hleypa af stokkunum. Meðfylgjandi mynd var tekin í Borgarnesi í gær.