Fara í efni

Kynningarfundir á DMP fara vel af stað

Í gær voru fyrstu tveir fundirnir í röð 14 kynningarfunda um allt land þar sem Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála kynna gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans/DMP). Í dag var svo haldið áfram og fundað á Hólmavík og í Borgarnesi.

Stærsta samhæfða þróunarverkefnið

Verkefnið er eitt stærsta samhæfða þróunarverkefnið sem ráðist hefur hér á landi, eitt af forgangsverkefnum Ferðamálastofu og eitt viðamesta áhersluverkefni Vegvísis/Stjórnstöðvar ferðamála. Með í för er skoski sérfræðingurinn Tom Buncle frá fyrirtækinu Yellow Railroad, sem fenginn hefur verið sem sérstakur ráðgjafi að verkefninu.

Skráning stendur yfir

Ferðamálastofa og Stjórnstöð ferðamála hvetja hagaðila til að mæta á fundina og kynna sér málið en skráning stendur yfir hér á vefnum. Kynningarefni fundanna verður aðgengilegt á vef Ferðamálastofu eftir 13. október. Myndirnar hér að neðan voru teknar í Borgarnesi í dag.

Skráning og nánari upplýsingar

Bein útsending frá Akureyri

Hægt verður að fylgjast með fundinum á Akureyri 11. október í beinni útsendingu á Internetinu. Til að tengjast fundinum er farið á slóðina hér að neðan:

https://global.gotomeeting.com/join/250596285