Fara í efni

Kynningarfundir á 8 stöðum á landinu

Viljum minna á kynningarfundi Ferðamálaráðs Íslands sem haldnir verða á 8 stöðum á landinu í dag kl. 14:00 í gegnum fjarfundabúnað. Nú hafa Vestmannaeyjar og Sauðárkrókur bæst við frá því í gær.

Fundirnir eru ætlaðir þeim sem áhuga hafa á samstarfi við Ferðamálaráð í markaðs- og kynningarmálum í ferðaþjónustu og þeim sem hafa áhuga á að sækja um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum, en þar er nú unnið samkvæmt nýjum áherslum.

Fundirnir verða á eftirfarandi stöðum.

Dags. 7. janúar 2004 kl. 14:00:

Borgarnes:
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi
Borgarbraut 11

Ísafjörður:
Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Eyrargata 2-4

Sauðárkrókur:
Fjölbrautaskólinn

Akureyri:
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar - SÍMEY
Þórsstíg 4, 2 hæð

Egilsstaðir:
Fræðslunet Austurlands
Tjarnarbraut 39

Höfn í Hornafirði:
Nýheimar
Litlubrú 2

Selfoss:
Fræðslunet Suðurlands
Austurvegi 56

Vestmannaeyjar:
Rannsóknasetrið