Fara í efni

Krásir - Matur úr héraði

Krásir
Krásir

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Ferðamálastofa óska eftir umsóknum í samstarfsverkefnið Krásir - Matur úr héraði en umsóknarfrestur er til og með 11 júní 2012. Ekki er veittur styrkur til fjárfestinga og geta styrkir að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins. Verkefnið er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ferðamálastofu

Þróunarverkefni á sviði svæðisbundinnar matargerðar
Tilgangur verkefnisins er að styrkja þróun í svæðisbundinni matargerð og matartengdri ferðaþjónustu. Styrkt verða verkefni sem miða að því að framleiða og markaðssetja  matvörur sem byggja á hráefni, sögu og þekkingu frá viðkomandi svæðum. Ennfremur er markmiðið að auka samstarf milli fyrirtækja í ferðaþjónustu og lítilla fyrirtækja sem framleiða matvörur og auðvelda þeim sameiginlega markaðssetningu á svæðinu. Þeir, sem taka þátt í verkefninu taka þátt í fræðslu um í þróun, vinnslu og meðferð matvæla og fá auk þess fjárhagslegan og faglegan stuðning við þróun á nýjum afurðum. Með verkefninu er verið að auka þekkingu á gæðum og faglegri vinnu við þróun nýjum matvörum. Einstök fyrirtæki og hópar fyrirtækja, geta sótt um þátttöku í verkefninu.

Ítarlegri upplýsingar um verkefnið og umsóknarform (á vef Nýsköpunarmiðstöðvar)

Nánari upplýsingar veita:

    Tinna Björk Arnardóttir í síma 522-9450 / tinnabjork@nmi.is
    Sigurður Steingrímsson í síma 522-9435 / sigurdurs@nmi.is

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson / arctic-images.com