Komdu út ehf. / Eagle golfferðir – Kröfulýsingafrestur til 9. febrúar
04.02.2026
Þann 9 febrúar næstkomandi rennur út frestur til að senda inn kröfur til Ferðatryggingasjóðs vegna niðurfellingar á ferðaskrifstofuleyfi Komdu út ehf., með hjáheitið Eagle golfferðir.
Þeir ferðamenn sem telja sig eiga kröfur á félagið vegna pakkaferðar sem ekki hafi verið framkvæmd í samræmi við samning, þurfa að skila kröfum sínum fyrir þann tíma í gegnum vefgátt island.is. Með kröfulýsingu skulu fylgja fullnægjandi gögn til sönnunar um kröfuna, svo sem lýsingu á ferð, greiðslukvittanir með nafni greiðanda og viðtakanda.