Fara í efni

Kjóstu um bestu tillöguna að lýsandi nafni á Íslandi

Kjóstu um bestu tillöguna að lýsandi nafni á Íslandi

Sunnudaginn 21. apríl slíðastliðinn var opnuð ljósmyndasýning á Austurvelli þar sem sýndar eru 20 vinsælustu tillögurnar í nafnasamkeppni vetrarherferðar Inspired by Iceland.

Herferðin hófst í ágúst 2012 og var erlendum ferðamönnum og vinum Inspired by Iceland gert kleift að senda inn tillögur að því hvað Ísland ætti að heita ef það væri að gefa landinu nafn miðað við kynni sín af landinu og voru þeir spurðir spurningarinnar „What does Iceland mean to you….“. Meðal þeirra nafna sem stungið hefur verið upp á eru: Iceland is my Wonderland, Iceland is my Lavaland, Iceland is my Aliveland, Iceland is my Amazeland og Iceland is my Uniqueland.

Kosið um tvær tillögur

Jón Gnarr Borgarstjóri opnaði sýninguna og kynnti jafnframt tvær vinsælustu tillögurnar sem keppa um sigurinn Iceland is my Let´s get lost land og Iceland is my Isle of Awe land.

Á vef Inspired by Iceland er nú hægt að sjá tvö myndbönd sem framleidd hafa verið fyrir hvort nafnið fyrir sig. Tveir erlendir leikstjórar voru fengnir til að túlka nöfnin tvö á sinn hátt í þessum myndböndum. Þessir leikstjórar eru: Abteen Bagheri og Rollo Jackson, en þeir koma frá Bandaríkjunum og Bretlandi.

Við hvetjum alla til þess að kíkja inn á vef Inspired by Iceland og kjósa um bestu tillöguna ásamt því að skoða ljósmyndasýninguna á Austurvelli.

Með kveðju,
Ísland – allt árið teymið