Fara í efni

Keflavíkurflugvöllur ohf. tekur til starfa

Flugstöð
Flugstöð

Opinbera hlutafélagið Keflavíkurflugvöllur tók til starfa nú um áramótin í því er sameinuð starfsemi Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Félagið er stofnað samkvæmt heimild í lögum sem samþykkt voru á Alþingi í fyrravor. Samgönguráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laganna. Forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf. er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur.

Nýja félagið tekur við rekstri, viðhaldi og uppbyggingu Keflavíkurflugvallar sem borgaralegs flugvallar auk hagnýtingar flugvallarsvæðisins í þágu öryggis- og varnartengdrar starfsemi svo og rekstri, viðhaldi og uppbyggingu flugstöðvarinnar. Félaginu er heimilt að standa að stofnun annarra félaga og fyrirtækja og gerast eignaraðili að öðrum félögum og fyrirtækjum. Þannig er félaginu heimilt að taka þátt í félagi sem ætlað væri að annast atvinnuuppbyggingu á nærsvæði flugvallarins.