Fara í efni

Ítalskur vefur bætist við

Ítalskur vefur forsíða
Ítalskur vefur forsíða

Nú hefur bæst við ítölsk útgáfa af landkynningarvef Ferðamálstofu www.visiticeland.com. Þá er hollenskur vefur einnig í vinnslu og má reikna með að hann verði opnaður innan tíðar.

Eftir að ítalska útgáfa bættist við er landkynningarvefurinn orðinn á 9 tungumálum, þ.e. ensku, dönsku, þýsku, frönsku, spænsku, ítölsku, sænsku og norsku auk íslensku. Eins og áður hefur komið fram er umferð um landkynningarvefi Ferðamálastofu sívaxandi enda alkunna að mikilvægi Internetsins í öllu markaðsstarfi er alltaf aðaukast, ekki síst í ferðaþjónustu. Skoða ítalska vefinn

Mynd: Forsíða ítalska vefsins.