Fara í efni

Íslensk ferðaþjónusta kynnt á ITB í Berlín

ITB2004
ITB2004

Internationale Tourismus-Börse (ITB), sem er ein stærsta ferðasýning í heimi hefst á morgun í Berlín og stendur fram á sunnudag. Íslensk ferðaþjónusta verður þarna kynnt með öflugum hætti, eins og jafnan áður.

Sýningin er haldin árlega, nú í 31. sinn og hefur Ferðamálastofa tekið þátt í henni nánast frá upphafi. Að þessu sinni kynna 17 ferðaþjónustufyrirtæki þjónustu sína á íslenska sýningarsvæðinu. Starfsfólk Ferðamálastofu í Frankfurt hefur veg og vanda að undirbúningi fyrir Íslands hönd og skipuleggur þátttökuna. Auk fyrirtækja sem taka þátt sem sýnendur koma einnig þó nokkur fyrirtæki í viðskiptaerindum frá Íslandi. Þátttakendur frá um 150 löndum eru mættir til Berlínar og því ljóst að samkeppnin um ná hylli ferðamanna er hörð.

Skandinavian Travel Award
Líkt og undanfarin ár verða ferðaverðlaunin Skandinavian Travel Award veitt á ITB. Að verðlaununum stendur tímaritið Nordis-Magazin í samvinnu við Ferðamálaráð Norðurlandanna. Markmið Skandinavian Travel Award er að verðlauna framúrskarandi nýjungar, góða þjónustu og árangursríka markaðssetningu í ferðaþjónustu Norður-Evrópu. Verðlaunin veita jafnframt verðlaunahöfum aukna athygli fjölmiðla og staðfesta gildi þess að gera vel. Dómnefndina skipa ferðablaðamenn, markaðssérfræðingar og f ferðasérfræðingar. Þó nokkur íslensk fyrirtæki hafa hlotið verðlaunin.

Listi yfir fyrirtæki á ITB 2007 (PDF-skjal)