Fara í efni

Íslandskynning í samvinnu við SHREK

Shrek
Shrek

Ísland er komið í leik með aðstandendum SHREK kvikmyndarinnar. Innan skamms senda þeir frá sér nýja mynd sem kallast ?SHREK THE THIRD? og er búist við því að hún gefi hinum ekkert eftir í vinsældum.

Kynning Íslands í þessu tilfelli verður á Los Angeles, Hollywood og Suður-Kaliforníusvæðinu þar sem 8 heilsíðuauglýsingar munu birtast í stórblaðinu Los Angeles Times og verða myndir frá Íslandi skreyttar auglýsingunum og einnig vefsíðum þeim sem þessu tengjast. Í boði er sex daga ævintýraferð til Íslands fyrir fjögurra manna fjölskyldu og er verðgildi ferðarinnar metið á rúma 10.000 dollara. Dregið verður um ferðina í sjónvarpsútsendingu þann 16. maí. Ferðamálastofa í bandaríkjunum og Icelandair standa sameiginlega að þessari kynningu og er reiknað með að tugir þúsunda freisti gæfunnar og reyni að krækja sér í ókeypis ferð til landsins.