Fara í efni

Íslandsbæklingur Ferðamálaráðs 2003 kominn út

Fjárhagsáætlun Ferðamálaráðs 2004
Fjárhagsáætlun Ferðamálaráðs 2004

Hinn árlegi Íslandsbæklingur Ferðamálaráðs er mikilvægur liður í markaðssetningu Íslands sem ferðamannalands. Íslandsbæklingurinn fyrir árið 2003 er nú kominn úr prentun og farinn í dreifingu.

Íslandsbæklingurinn er myndskreyttur landkynningarbæklingur og er sem fyrr gefinn út á 10 tungumálum, þ.e. ensku, dönsku, sænsku, norsku, finnsku, hollensku, ítölsku og spænsku, auk sérútgáfu fyrir þýskumælandi lönd, Frakkland og Norður-Ameríku. Upplag bæklingsins er 350 þúsund eintök. Skrifstofur FMR erlendis, sem og ferðaheildsalar í viðkomandi löndum, annast dreifingu bæklingsins, auk þess sem hann er kynntur á ferðasýningum víðsvegar um heim og sendur til íslenskra sendiráða og ræðismanna. Leitað er eftir þátttöku aðila í ferðaþjónustu í kostnaði við gerð bæklingsins og aftast í honum er að finna upplýsingasíður þar sem þeim gefst kostur á að fá birtar upplýsingar um fyrirtæki sitt gegn gjaldi.

Aukið vægi Internetsins
Vægi Internetsins í upplýsingaöflun ferðafólks er alltaf að aukast, eins og m.a. fékkst staðfest í síðustu könnun Ferðamálaráðs meðal erlendra ferðamanna. Könnunin sýndi að nærri helmingur þeirra ferðamanna sem kom til Íslands sl. sumar aflaði sér upplýsinga um Ísand á Internetinu. Nú hefur það skref verið stigið að Íslandsbæklingurinn 2003 fyrir Norður-Ameríkumarkað hefur verið settur inn á vef Ferðamálaráðs Íslands í Bandaríkjunum þar sem hann er öllum aðgengilegur.