Fara í efni

Ísland valið ?Best European Adventure Destination"

Verðlaun Sunday Times
Verðlaun Sunday Times

Ísland var í fyrradag valið „Best European Adventure Destination” af lesendum Sunday Times Travel Magazine.

Verðlaunin voru tilkynnt á „Readers Awards” móttöku á St. Pancras Renaissance Hotel á Kings Cross í London. Sunday Times Travel Magazine er stærsta ferðatímaritið í Bretlandi og voru það lesendur blaðsins sem völdu Ísland fram yfir Noreg og Sviss sem lentu í 2. og 3. sæti. Þá var Ástralía kosin besti áfangastaðurinn utan Evrópu. Viðurkenningin þykir vera mikill heiður og var þetta eini flokkurinn þar sem lönd voru verðlaunuð, segir í frétt frá Íslandsstofu.

Mynd: Sigríður Gróa Þórarinsdóttir, verkefnisstjóri markaðssóknar fyrir Bretland & Írland hjá Íslandsstofu, og Lisa Vernall, frá Sunday Times Travel Magazine.