Fara í efni

"Ísland - sækjum það heim" bætist liðsauki

Hvernigsemvidrar
Hvernigsemvidrar

Ferðaátakinu "Ísland - sækjum það heim" , sem Samgönguráðuneytið og Ferðamálaráð Íslands, standa að hefur bæst mikill liðsauki. Gengið hefur verið frá samkomulagi um samstarf við Ríkisútvarpið, Olíufélagið ESSÓ og Íslandspóst og munu þessir aðilar leggja sitt af mörkum til þess að efla ferðalög landsmanna innanlands eins og kostur er. Framlag samstarfsaðilanna þriggja má meta til um 20 milljóna króna og alls er umfang kynningarátaksins, sem einkum stendur yfir á sumarmánuðunum, þá orðið um 50 milljónir króna.

Hvernig sem viðrar
Samstarf RÚV og Íslands - sækjum það heim felst í gerð ferðaþáttarins Hvernig sem viðrar, sem sýndur verður vikulega fram eftir sumri, eins og sjónvarpsáhorfendur hafa  þegar séð, enda nokkuð síðan þættirnir fóru í loftið. Umsjónarmenn þáttarins leggja land undir fót og bregða sér í ferð um landið. Þeir munu koma víða við á ferð sinni og verður ekkert óviðkomandi, hvort sem um spennandi ævintýraferðir, hjólreiðar um hálendið, böð í heitum laugum, leyndar náttúruperlur eða skemmtilegar uppákomur er að ræða. Hvernig sem viðrar er þáttur sem unninn er á lifandi hátt og hægt er að fylgjast með ferðalöngunum á vefsíðu RÚV, þar sem þeir halda úti ferðadagbók, auk þess sem umsjónarmennirnir eru í reglulegu sambandi við Rás 2.

Póstkortaleikur
Þáttur ESSÓ og Íslandspósts tengist einkum sérstökum póstkortaleik sem efnt er til undir formerkjum átaksins. Markmiðið með leiknum er að hvetja ferðafólk til þess að senda vinum og vandamönnum póstkort hvaðanæva að af landinu. Þeir sem taka þátt í sjálfum póstkortaleiknum senda kort með skemmtilegum textum til Helgarútgáfunnar á Rás 2 og þar verður vikulega valið besta póstkortið og sendanda þess veitt verðlaun. Í haust verður síðan dregið úr öllum innsendum póstkortum sumarsins og munu nokkrir heppnir þátttakendur fá vegleg verðlaun. Aðalvinningur póstkortaleiksins er Coleman fellihýsi en á meðal annarra vinninga má nefna spennandi ferðir á vegum Íslenskra ævintýraferða, flugmiða hjá Flugfélagi Íslands, gasgrill og bensínvinninga

Upplifa landið með vakandi auga
Markmið ferðaátaksins Ísland sækjum það heim er að hvetja Íslendinga til að ferðast um landið sitt og upplifa það með vakandi og forvitnu auga ferðamannsins með svipuðum hætti og þegar þeir ferðast erlendis. Um leið eru landsmenn hvattir til þess að gefa sér aukinn tíma til slökunar og afþreyingar, kynna sér umhverfi, sögu og menningu þjóðarinnar og njóta þeirrar fjölbreyttu möguleika sem íslensk ferðaþjónusta býður upp á um allt land.

Samstarfssamkomulag aðstandenda ferðaátaksins undirrituðu þeir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra, Einar K. Guðfinnsson, formaður Ferðamálaráðs Íslands, Lárus Guðmundsson, auglýsingastjóri RÚV, Hjörleifur Jakobsson forstjóri Olíufélagsins ESSÓ og Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslandspósts. Athöfnin fór fram í Fjörukránni í Hafnarfirði.