Fara í efni

ISAVIA ohf. tekur til starfa

Flugfarþegar
Flugfarþegar

ISAVIA ohf., nýtt opinbert hlutafélag um sameinaða starfsemi Keflavíkurflugvallar ohf. og Flugstoða ohf. tók til starfa nú um mánaðamótin. Með sameiningu félaganna er stefnt að enn frekari hagræðingu og skilvirkni í rekstri flugvallar- og flugleiðsöguþjónustu í landinu og lagður grundvöllur að nýrri starfsemi og þjónustu á sviði flugs og viðskipta. Fjármálaráðherra fer með hlut ríkisins í félaginu en samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur faglegt eftirlit með starfseminni.

Með breytingunni er öll flugvallaþjónusta, flugleiðsöguþjónusta og rekstur flugstöðva ásamt uppbyggingu og fjárfestingu í hvers kyns þjónustu hins opinbera á sviði flugmála, komin undir einn hatt.

Félagið Flugstoðir ohf. var stofnað í ársbyrjun 2007 til þess að annast rekstrarþætti í þjónustu hins opinbera við flugstarfsemi sem áður voru í höndum Flugmálastjórnar Íslands. Félagið hefur annast uppbyggingu flugvalla og lendingarstaða á Íslandi annarra en Keflavíkurflugvallarásamt flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlandsflug en stjórnsýsla og eftirlit eru eftir sem áður á ábyrgð Flugmálastjórnar Íslands.

Næsti áfangi var þegar ábyrgð á flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli og málefni Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar voru færð frá utanríkisráðuneyti til samgönguráðuneytis í ársbyrjun 2008.

Þá varð enn einn áfanginn þegar Keflavíkurflugvöllur ohf., tók formlega til starfa í ársbyrjun 2009 til þess að annast rekstur, viðhald og uppbyggingu flugvallarins og flugstöðvarinnar ásamt þjónustu við flugrekendur og hagnýtingu flugvallarins í þágu öryggis- og varnarmála.

Starfsmenn ISAVIA og þriggja dótturfélaga þess eru samtals um 650. Forstjóri félagsins er Björn Óli Hauksson rekstrarverkfræðingur. Stjórn félagsins skipa Þórólfur Árnason formaður, Arnbjörg Sveinsdóttir, Arngrímur Jóhannsson, Ásta Rut Jónasdóttir, Jón Norðfjörð, Ragnar Óskarsson og Rannveig Guðmundsdóttir.