Fara í efni

Inspired by Iceland verðlaunað

Inspired by Iceland verðlaunað

Inspired by Iceland var verðlaunað í tvígang þegar hin virtu Cannes Lion auglýsingaverðlaun voru veitt í 60. skipti í Frakklandi á sunnudag. Herferðin fékk tvenn bronsverðlaun fyrir notkun almannatengsla í vetrarátaki Inspired by Iceland þar sem ferðamenn voru beðnir um að stinga upp á lýsandi nafni fyrir Ísland í samræmi við upplifun sína af landinu.

Inspired by Iceland hlaut verðlaun í flokkunum ferðaþjónusta og afþreying annars vegar, og alþjóðleg almannatengslaherferð hins vegar. Cannes Lions verðlaunin eru ein þau stærstu sem veitt eru í auglýsingaheiminum og hafa verið frá því til þeirra var stofnað árið 1954. Alls voru 34.300 tillögur sendar inn til dómnefndar.

Íslandsstofa er framkvæmdaraðili Inspired by Iceland, en það voru Íslenska auglýsingastofan og Brooklyn Brothers í Bretlandi sem unnu vetrarherferðina.