Fara í efni

Icelandair flýgur til New York í allan vetur - hlé gert á flugi til Minneapolis

Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva
Námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva

Icelandair mun fljúga til New York í áætlunarflugi í allan vetur, en undanfarin tvö ár hefur félagið gert hlé á flugi sínu í nokkrar vikur yfir háveturinn. Félagið mun hinsvegar ekki bjóða upp á flug til og frá Minneapolis í um tvo mánuði í vetur.

Við teljum að afkoma af fluginu til New York geti orðið betri í vetur en við höfum séð fram á að undanförnu og það er mjög jákvætt. Hinsvegar hafa forsendur vetrarflugsins til Minneapolis breyst nokkuð og við teljum rétt að gera hlé á starfsemi okkar þar á þeim tíma sem minnst eftirspurn er", segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair um þessa ákvörðun í frétt á vef Icelandair. Ekki verður flogið til Minneapolis á tímabilinu frá 9. janúar til 13. mars 2006.

Icelandair heldur uppi reglubundnu áætlunarflugi milli Íslands og 22 áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum. Auk New York og Minneapolis flýgur félagið til Boston, Orlando, Baltimore/Washington og San Francisco í Bandaríkjunum