Fara í efni

Iceland Express bætir Skotlandi og Írlandi við

Iceland express
Iceland express

Edinborg, Dublin og Belfast bætast við sem áfangastaðir á vegum Iceland Express næsta sumar. Beint flug á milli Íslands og þessara staða hefur ekki verið í boði til þessa.

Flogið verður tvisvar í viku á milli Íslands og Edinborgar í Skotlandi. Áætlunin hefst 14. júní og nær til 30. ágúst. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum. Áætlunin til Belfast á Norður-Írlandi tengist Edinborgarfluginu og er því á sömnu dögum. Til Dublin á Írlandi verður hins vegar flogið vikulega, á þriðjudögum, frá 10. júní til 29. ágúst.