Fara í efni

Hvernig tökum við á móti ferðamönnum í sumar?

Isavia býður til morgunfundar miðvikudaginn 18. maí kl . 9–10.15 á Hotel Reykjavik Natura. Framundan er stærsta sumar frá upphafi fyrir ferðaþjónustu á Íslandi. Miklar áskoranir felast í því fyrir alla þá sem starfa innan greinarinnar.

Hvernig erum við á Keflavíkurflugvelli undirbúin? Hvernig getum við samstillt skilaboðin til ferðamanna þannig að ferðalag þeirra um flugvöllinn gangi sem best? Hversu ánægðir eru ferðamenn með dvöl sína á Íslandi?

Dagskrá:
Húsið opnar 8.30 og fundur hefst kl. 9

Elín Árnadóttir aðstoðarforstjóri Isavia býður gesti velkomna.

Hvernig tökum við á móti ferðamönnum í sumar?
Hlynur Sigurðsson framkvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar fjallar um það hvernig Isavia og aðrir rekstraraðilar á flugvellinum munu takast á við mikinn fjölda ferðamanna í sumar.

Hversu ánægðir eru ferðamenn með dvöl sína á Íslandi?
Einar Einarsson framkvæmdastjóri Gallup kynnir Ferðamannapúls Isavia, Ferðamálastofu og Gallup.

Umræður í lok fundar

Við hvetjum alla þá sem starfa í ferðaþjónustunni og aðra áhugasama til að mæta og kynna sér það sem framundan er á Keflavíkurflugvelli.

Boðið verður upp á kaffi og léttan morgunverð
Skráning á fundinn er á www.isavia.is/morgunfundur