Fara í efni

Hvatningarverðlaun í heilsuferðaþjónustu

Heilsuverðlaun
Heilsuverðlaun

Til að tryggja áframhaldandi þróun á sviði heilsuferðaþjónustu á Íslandi hefur iðnaðarráðherra ákveðið að veita ein hvatningarverðlaun að fjáhæð ein milljón króna til áhugaverðra verkefna á sviði heilsuferðaþjónustu. Verðlaunin verða veitt í desember næstkomandi.

Hverjir geta tekið þátt:
Hópar fyrirtækja, stofnana og einstaklinga sem vinna sameiginlega að áhugaverðum vörum á sviði heilsuferðaþjónustu sem eru í þróun.

Við mat umsókna verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:

  • Verkefnishugmyndar
  • Markhóps – er um nýjan erlendan markhóp að ræða?
  • Er varan í boði á lágönn?
  • Hvað er einstakt við vöruna / Upplifunin?
  • Hver er heilsuávinningur ferðar?
  • Samsetningar hóps og vel skilgreindra hlutverka innan samstarfshópsins
  • Vandaðra umsókna

Umsóknum skal skilað til Ferðamálastofu eigi síðar en 20. nóvember næstkomandi á sérstöku umsóknareyðublaði.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Hlín Sigurðardóttir, sigrun@ferdamalastofa.is, s. 535 5500.

*Heilsuferðaþjónusta er ferðaþjónusta sem felur í sér að ferðamaðurinn geti notið sem aðalþáttar og hvata ferðar eftirfarandi heilsuþátta: Vatns og vellíðunar, líkamsræktar, íþrótta og hreyfingar, endurhæfingar og heilsubætandi meðferða, hátæknilækninga. Auk mismunandi afþreyingar.

Mynd: Ragnar Th. Sigurðsson - www.arctic-images.com.