Fara í efni

Hugmyndatorg á Ferðafagnaði 2009

Ferðafagnaður 2009 -lógó
Ferðafagnaður 2009 -lógó

Ferðafagnaður verður haldinn í sjötta sinn laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Viðburðurinn býður upp á möguleika í nýsköpun og hugmyndaflæði í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu.

Hugmyndatorg á Höfuðborgarstofu.

Hugmyndatorg verður opið milli 15:00 ? 18:00 dagana 16. ? 20. apríl í glerskálanum fyrir framan Upplýsingamiðstöð ferðamanna, Aðalstræti 2. Þar verða fulltrúar ferðaþjónustunnar ? sem og aðrir áhugasamir íbúar höfuðborgarinnar hvattir  til að koma með hugmyndir að nýjungum í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Bæði verður vettvangur til að hittast til skrafs og ráðagerða en eins verður hægt að koma frá sér fullunnum hugmyndum í lokuðu umslagi.

Hugmyndatorgið verður kynnt um leið og Ferðafagnaðurinn í blöðum, samlesnum auglýsingum á Rúv og í skjáauglýsingum. Einnig er viðburðurinn með heimasíðu: www.ferdafagnadur.is og hóp á Facebook: Hugmyndatorg fyrir ferðaþjónustuna

Hugmyndatorgið verður ávallt mannað starfsfólki Höfuðborgarstofu og fulltrúum ýmissa ferðaþjónustufyrirtækja.

Á Hugmyndatorginu munu fulltrúar einstakra ferðaþjónustufyrirtækja kynna starfsemi sína og boðið verður upp á skapandi umræður í lok kynninga.