Fara í efni

Hugmyndasamkeppni um hönnun og ásýnd fornleifa við Stöng

Stöng
Stöng

Fornleifavernd ríkisins í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands efnir í sumar til almennrar hugmyndasamkeppni um tillögur að hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa sem eru við Stöng í Þjórsárdal.

Minjastaður í fyrsta skipti hannaður heildrænt
Með verkefninu sem er minjastaður á Íslandi í fyrsta skipti hannaður heildrænt með hliðsjón af umhverfisþáttum og með það í huga að gera hann aðgengilegan og áhugaverðan fyrir almenning. Hér er því um frumkvöðlaverkefni að ræða. Áhugi er fyrir að gera sem flestar af fornleifunum í dalnum aðgengilegar fyrir ferðamenn á næstu árum. Hugsanlegt er að yfirfæra megi hugmyndina að fullu eða að hluta yfir á aðrar fornleifar í dalnum. Markmiðið er að nýta megi lausnina sem tillögu að því hvernig megi vinna að svipuðum verkefnum í framtíðinni á öðrum íslenskum minjastöðum.

Keppnislýsing og samkeppnisgögn
Keppnislýsing er aðgengileg á vef Arkitektafélags Íslands, www.ai.is, á vef Félags íslenskra landslagsarkitekta, www.fila.is og á vef Fornleifaverndar ríkisins, www.fornleifavernd.is . Samkeppnisgögn eru afhent á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, Reykjavík, á milli kl. 09:00 og 13:00 virka daga.

Nánari upplýsingar og verkefnaskil
Hægtb er að fá nánari upplýsingar hjá trúnaðarmanni samkeppninnar í síma 899 6225 eða með tölvupósti á netfangið harh@simnet.is. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns, á skrifstofu Arkitekafélags Íslands að Engjateig 9 eigi síðar en 28. september 2012.