Fara í efni

Hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið

© arctic-images.com
© arctic-images.com

Auglýst hefur verið hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal. Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða veitti sveitarfélaginu Bláskógabyggð styrk til að halda samkeppnina. 

Fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu

Markmið samkeppninnar er að fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins. Geysir er einstakt náttúrufyrirbæri og frægasti goshver heims og er hverasvæðið einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi.

Raunhæfar og spennandi tillögur um heildarlausn

Áhersla er lögð á raunhæfar og spennandi tillögur um heildarlausn á aðgengi hverasvæðisins og tengingu svæðisins við nánasta umhverfi. Tillögur skulu bera með sér vandað og fallegt heildaryfirbragð sem fellur vel að umhverfinu og taki mið af helstu sérkennum svæðisins. Þrenn verðlaun verða veitt að heildarfjárhæð 8 milljónir kr.

Unnið í samvinnu

Undirbúningsnefnd vann að mótun lýsingar og dómnefnd vann síðan keppnisgögn. Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands, Landeigendafélag Geysis ehf, ríkið og Félag Landslagsarkitekta og allir eiga fulltrúa í dómnefndinni. Samstarfið hefur verið mjög gefandi og skemmtilegt.

Eigendur sammála um mikilvægi uppbyggingar

Þess er vænst að áhugafólk taki þátt í samkeppninni og að góðar hugmyndir komi um uppbyggingu og skipulag Geysissvæðisins. Eigendur eru sammála um að mikilvægt er að byggja svæðið upp og koma því í það horf að hægt verði að taka vel á móti öllum gestum sem langar til að njóta svæðisins, fegurðar þess og sögu.

Keppnislýsing og samkeppnisgögn

Keppnislýsingin er aðgengileg á eftirtöldum vefsvæðum:

Samkeppnisgögnin verða afhent á skrifstofu Arkitektafélags Íslands í Vonarstræti 4b Rvk. milli kl. 9:00 og 13:00 virka daga frá 24. september.

Skilafrestur til 30. janúar

Skilafrestur tillagna er þann 30. janúar 2014. Dómnefndin áætlar að kynna niðurstöður með sýningum á Geysissvæðinu og í Reykjavík í byrjun mars 2014.

Nánari upplýsingar gefa:

Halldóra Vífilsdóttir, aðstoðarforstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins, formaður dómnefndar, s. 895 1555
Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar, ritari dómnefndar,