Fara í efni

Hjólum til framtíðar 2015 - Veljum, blöndum & njótum!

Hjólum til framtíðar 2015 - auglýsingaborði

Ferðamálastofa er meðal aðila sem standa að  ráðstefnunni "Hjólum til framtíðar 2015 - Veljum, blöndum & njótum" sem fram fer í Smárabíó í Smáralind, föstudaginn 18. september kl. 9-16. Ráðstefnan er 5. ráðstefnan undir heitinu Hjólum til framtíðar og hefur ævinlega verið haldin á föstudeginum í Evrópsku samgönguvikunni.

Hún er haldin af Hjólafærni á Íslandi og Landssamtökum hjólreiðamanna í samvinnu við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur, Kópavogsbæ, Garðabæ, Hafnafjörð, Seljtjarnarnes, Mosfellsbæ, Samgöngustofu, Vegagerðina, Mannvit, European Cyclist Federation, Íslenska fjallahjólaklúbbinn, Farfugla á Íslandi, Ferðamálastofu, ÍSÍ og Umhverfis- og Auðlindaráðuneytið.

Megintilgangurinn með ráðstefnunni er að leggja rækt við virka vegfarendur, ánægjuaukandi hjólreiðar, samfélagsleg framlegð og lýðheilsuþátt hjólreiða og skoða umhverfið sem við bjóðum í lífvænni borg.

Við höfum boðið til landsins Dorthe Pedersen frá Cyklin uden alder, sem er einstaklega hlýtt og skemmtilegt samfélagsverkefni og hefur sannarlega slegið í gegn í DK og víðar.

Dagskrá ráðstefnunnar 

Skráning á ráðstefnuna

Ráðstefnan verður send út beint á netinu. Sjá hér.