Fara í efni

Hjólaleiðir á Íslandi hlutu nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

Forsíða skýrslu um verkefnið.
Forsíða skýrslu um verkefnið.

Verkefnið Hjólaleiðir á Íslandi hlaut í gær nýsköpunarverðlaun forseta Íslands. Verkefnið fólst í því að vega og meta hjólaleiðir á Íslandi út frá kröfum EuroVelo verkefnisins með það að markmiði að koma einni leið á Íslandi inn á kort EuroVelo.

Framhald af ráðstefnu um hjólaferðamennsku

Verkefnið var unnið af Evu Dís Þórðardóttur úr Háskólanum í Reykjavík og Gísla Rafni Guðmundssyni nemanda í Háskólanum í Lundi, Svíþjóð og var styrkt af EFLU verkfræðistofu. Hugmynd að verkefninu kom fram í kjölfar ráðstefnu sem haldin var sem hluti af því að efla hjólreiðar á Íslandi en ráðstefnan bar heitið Tækifæri í hjólaferðamennsku á Íslandi og var haldin í höfuðstöðvum EFLU verkfræðistofu árið 2012. Þar var m.a. fjallað um stöðu hjólaferðamennsku á Íslandi og EuroVelo verkefnið kynnt.

Ísland verði hluti af meginkerfi reiðhjólaleiða í Evrópu

EuroVelo heldur utan um meginkerfi reiðhjólaleiða í Evrópu og er ætlað að stuðla að sjálfbærri ferðamennsku. Á korti EuroVelo eru í dag 14 leiðir, sem eru samtals um 45.000 km langar. Skráning á leið um Ísland inn á kort samtakanna er mikilvægur þáttur í að vekja athygli á Íslandi sem viðkomustað fyrir hjólaferðamenn og auka tækifæri í sjálfbærri ferðaþjónustu hér á landi. Jafnframt var hér safnað saman á einn stað mikilvægum upplýsingum um leiðirnar fyrir ferðaþjónustuaðila og umsjónarmenn EuroVelo hér á landi.

Ferðamálastofa fóstrar verkefnið

Hluti af verkefninu fólst í að koma á samstarfi aðila innan Íslands sem tækju að sér að fóstra verkefnið til framtíðar. Ferðamálstofa ásamt Landssamtökum hjólreiðamanna og öðrum hagsmunaaðilum hafa nú sent umsókn til EuroVelo fyrir hönd Íslands þar sem gögn nýsköpunarverkefnisins eru nýtt. Ferðamálastofa hefur tekið að sér að fóstra verkefnið fyrir Íslands hönd.

Skýrsla um verkefnið er aðgengileg í gagnabanka um útgefið efni hér á vefnum.

Um Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands

Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna sumarið áður. Verðlaunin voru fyrst veitt 1996 og eru því nú veitt í nítjánda sinn. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhenti verðlaunin, eins og sjá má hér á mynd mbl.is.