Fara í efni

Hjólað á köldum svæðum er leikur einn

Hjólað - vetur
Hjólað - vetur

Ráðstefnan "Hjólum til framtíðar 2012 - rannsóknir og reynsla" verður haldin í Iðnó 21. september kl. 9 - 16. Í ár er áherslan á það sem efst ber á baugi í heimi hjólavísindanna og reynslu þeirra sem hafa eflt hjólreiðar í sínu nærumhverfi.

Hjólreiðar á köldum svæðum
Rannsókn um Hjólreiðar á köldum svæðum er eitt lykilerinda ráðstefnunnar. Þar kemur fram að öflugasti hópur hjólreiðamanna borgarinnar Oulu er á aldrinum 15 – 25 árs og um 30% þeirra hjóla árið um kring allra sinna ferða í allt að -30°frosti. Til samanburðar hefur þessi hópur hjólandi verið nánast ósýnilegur á Íslandi. 

Til landsins koma virtir vísindamenn með fyrirlestra, m.a. frá Bretlandi og Finnlandi. Einnig verða innlendar hjólatengdar rannsóknarniðurstöður og rannsóknir kynntar auk þess sem farið verður yfir reynslu einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga af eflingu hjólreiða. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Jón Gnarr borgarstjóri og Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR munu ávarpa ráðstefnuna. Þorsteinn Hermannsson samgönguverkfræðingur, verður fundarstjóri dagsins.

Árleg ráðstefna
Þetta er önnur ráðstefna Hjólafærni á Íslandi og Landssamtaka hjólreiðamanna sem haldin er í Evrópsku samgönguvikunni. Á síðasta ári bar hún nafnið Hjólum til framtíðar og nú er það Hjólum til framtíðar 2012- rannsóknir og reynsla. Á næsta ári, 20. sept. 2013, verður það Hjólum til framtíðar 2013; réttur barna til hjólreiða.

Samvinnuverkefni margra aðila
Hjólum til framtíðar 2012; rannsóknir og reynsla, er samvinnu verkefni fjölmargra aðila. Hjólafærni á Íslandi og Landssamtök hjólreiðamanna skipuleggja ráðstefnuna í góðri samvinnu við Reykjavíkurborg, Vegagerðina, Landlæknisembættið, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Ferðamálastofu og fleiri góða aðila.

Skráning til 19. september
Skráning á ráðstefnuna er hér: Hjólum til framtíðar 2012; skráning Skráningu lýkur á miðnætti 19. sept. Aðgangur að ráðstefnunni er 4.500 kr. og 2.000 kr. fyrir námsmenn. Erindin hennar verða aðgengileg á vef www.lhm.is eftir ráðstefnuna. Ráðstefnan verður einnig í beinni útsendingu á netinu þannig að hún á að vera aðgengileg áhugasömum um víða veröld.

Sent út á netinu
Þeir sem eiga lengra að sækja geta fylgst með ráðstefnunni í beinni útsendingu á Netinu. Leiðbeiningar til að tengjast eru hér að neðan.

  1. Uppsetning á nýjustu útgáfu Java:
    Til að byrja með er nauðsynlegt að tryggja að tölvan sé með nýjustu útgáfu af Java forritinu (er á öllum tölvum en ekki víst að þið séuð með það nýjasta). Þannig að best er að byrja á að fara inn á www.java.com, hlaða þar niður nýjustu útgáfu (áberandi hnappur á miðjum skjánum) og setja upp. Þetta getur tekið nokkrar mínútur.
     
  2. Tengjast fundinum:
    Til að tengjast fundinum er farið inn á þessa vefslóð sem verður virk skömmu áður en ráðstefnan hefst:
    https://fundur.thekking.is/startcenter/Join.xhtml?sinr=257111354&sipw=nv64
    Athugið að samþykkja þau skilaboð sem upp koma en í flestum tilfellum kemur tvívegis upp gluggi þar sem smellt er á „run“. Eftir það á fundur að hefjast.

Allar nánari upplýsingar veitir Sesselja Traustadóttir, framkvæmdastýra Hjólafærni á Íslandi í s. 864 2776 hjolafaerni@hjolafaerni.is

Dagskrá Hjólum til framtíðar 2012 – rannsóknir og reynsla:

9.00 - 9.05 Setning borgarstjóra, Jóns Gnarr.
  Hjólaskálin afhent; viðurkenning fyrir framúrskarandi hjólaeflingu.

9.05 – 9.50 Where have we come from? Where are we going to? Academic  Cycling Research.
  Peter Cox, Senior Lecturer in Sociology at the University of Chester, Great Britain

9.50 - 10.10 Kaffihlé 

10.10 – 10.30 Mat á gæðum hjólaleiða
   Davíð Arnar Stefánsson, meistaranemi í landafræði við Háskóla Íslands

10.30 – 10.50 Hjólað til og frá vinnu: Vísindaleg reynslusaga með ögn af tilfinningasemi
  Björn H. Barkarson, umhverfisfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf   

10.50 - 11.10 Hjólað í vinnuna, rannsókn á meðal liðsstjóra keppninnar
  Jóna Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands,

11.10 - 11.30 Hjólað í skólann – rannsókn á reiðhjólanotkun framhaldsskólanema og viðhorfi þeirra til hjólreiða.
  Bjarney Gunnarsdóttir, íþrótta- og hjólafærnikennari, B.S. í íþrótta- og heilsufræði.

11.30 - 11.50 Áhrif umhverfisupplifunar á samgönguhjólreiðarfólk
  Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ, doktorsnemi i skipulagsfrædi vid Norwegian University of Life Sciences 

11.50 – 12.50 Hádegismatur 

12.50 – 13.00 Ávarp menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur 

13.00 – 13.40 Winter cycling is an option
  Jaakko Ylinampa, Director, Lapland´s Centre for Economic Development, Transport and the Environment

13.40 - 14.00 Allt á hreyfingu: Hjólreiðar og borgarrými
  Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands   

14.00 - 14.20 Hjólastígar Reykjavíkurborgar – samstarf við Vegagerðina
  Ólafur Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar

14.20 - 14.35 Samgöngusamningar – er þess virði að láta fjármuni í þetta? Reynslan hjá Matís
  Steinar B. Aðalbjörnsson, markaðsstjóri Matís

14.35 - 14.50 Kaffihlé 

14.50 – 15.30 Pallborðsumræður: Hvernig eflum við hjólarannsóknir?
Hreinn Haraldsson Vegamálastjóri, Peter Cox dósent í félagsvísindum við háskólann í Chester, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir skipulagsfræðingur og aðjúnkt við HR, Jaakko Ylinampa forstjóri við Lapland´s Centre for Economic Development, Transport and the Environment og Harpa Stefánsdóttir, arkitekt FAÍ, doktorsnemi i skipulagsfræði. 

15:30 - 15:40 Samantekt; Þorsteinn Hermannsson 

15:40 – 15:50 Réttur barna til að hjóla:
  Sesselja Traustadóttir og Morten Lange kynna ályktun Velo-City Global 2012 og Hjólum til framtíðar 2013 - virðum rétt barna til hjólreiða; á öllum aldri.   

15:50 - 16:00 Ráðstefnuslit, Dr. Ari Kristinn Jónsson, rektor HR 

16:00 - 17:00 Móttaka í Ráðhúsinu

Fundarstjóri verður Þorsteinn Hermannsson, samgönguverkfræðingur hjá Mannviti.
Þorsteinn stýrir einnig pallborðsumræðunum.