Fara í efni

Hjálpar- og fylgigögn VAKANS opin öllum

Vakinn lógó
Vakinn lógó

Í kjölfar fjölda áskorana hefur verið tekin ákvörðun um að vista hjálpar- og fylgigögn VAKANS á ytra vef VAKANS og hafa þau því öllum opin.

Ferðaþjónustuaðilar eru eindregið hvattir til að nýta hjálpargögnin í þeim tilgangi að auka enn frekar gæði, öryggi og umhverfisvitund í fyrirtækjum sínum og vonast Ferðamálastofa til að sjá umsókn frá fyrirtækjunum í kjölfarið. 

Minnt er á að sá hluti VAKANS sem snýr að gistingu verður opnaður í byrjun árs 2013 en tekið er á móti umsóknum frá fyrirtækjum sem bjóða upp á alla aðra þjónustu við ferðamenn.
Saman eflum við gæði og öryggi í íslenskri ferðaþjónustu til framtíðar!

Vefur VAKANS: www.vakinn.is