Fara í efni

Hidden Iceland til liðs við Vakann

Á myndinni eru frá vinstri Ryan Connolly markaðs og umhverfisstjóri, Scott Drummond framkvæmdastjóri…
Á myndinni eru frá vinstri Ryan Connolly markaðs og umhverfisstjóri, Scott Drummond framkvæmdastjóri, Dagný Björg Stefánsdóttir forstjóri og Sigurður Harðarson frá vottunarstofunni iCert

Hidden Iceland fékk nýverið gæða- og umhverfisvottun Vakans. Þetta fjölskyldurekna ferðaþjónustufyrirtæki er stofnað árið 2017 og sérhæfir sig í dagsferðum og pakkaferðum. Áherslan er á sérsniðnar ferðir fyrir fjölskyldur og litla hópa um land allt t.d. gönguferðir á jökli, íshellaskoðun, norðurljósaskoðun eða heimsókn í einhverja af fjölmörgum náttúrulaugum landsins.

Í frétt á vef Vakans segir að verndun íslenskrar náttúru og umhverfismál séu Hidden Iceland afar mikilvæg. Allur rekstur Hidden Iceland hefur verið kolefnisjafnaður frá upphafi og er sífellt leitast eftir því að finna leiðir til að lágmarka áhrif á nærumhverfið samhliða vaxandi umsvifum í rekstri.

Scott Drummond framkvæmdastjóri segir „Frá upphafi höfðum við gæðastaðla Vakans að leiðarljósi varðandi það hvernig best væri að reka ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi á áhrifaríkan hátt og við höfum stöðugt bætt okkur í gegnum árin. Við erum mjög stolt af því að hafa hlotið þessa viðurkenningu núna á árinu“.

Nánar á vef Vakans