Fara í efni

Helga Árnadóttir nýr framkvæmdastjóri SAF

Helga Árnadóttir
Helga Árnadóttir

Helga Árnadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Hún tekur við þann 1. desember næstkomandi af Ernu Hauksdóttur sem gegnt hefur starfinu frá stofnun samtakanna 1998 en hún sagði starfi sínu lausu nýlega.

Helga er viðskiptafræðingur frá HÍ með MS próf í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík. Helga starfaði hjá VR frá árinu 2008 þar af síðustu 3 árin sem framkvæmdastjóri félagsins. Helga starfaði hjá Icelandair á árunum 1996-2007 í ýmsum stjórnunarstöðum, m.a. sem forstöðumaður Vildarklúbbs Icelandair, sölustjóri Icelandair á Íslandi og deildarstjóri áætlunar- og eftirlitsdeildar Icelandair. Helga er varaformaður stjórnar Framtakssjóðs Íslands og hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum m.a. í stjórn Icelandair hótela 2003-2005.

„Mikið og öflugt starf hefur verið unnið innan ferðaþjónustunnar á síðustu árum og áratugum. Það er því gífurlega spennandi að fá tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu greinarinnar með öllu því öfluga fólki sem að henni starfar“ segir Helga í frétt frá SAF.