Fara í efni

Handbók Ferðamálaráðs 2003 komin út

Handbók Ferðamálaráðs Íslands fyrir árið 2003 er komin út. Þetta er viðamikið rit en bókin byggir m.a. á gagnagrunni Ferðamálaráðs sem geymir upplýsingar um vel á annað þúsund ferðaþjónustuaðila um allt land. Má fullyrða að um er að ræða heildstæðasta gagnagrunninn um íslenska ferðaþjónustu sem til er í dag og er hann alltaf að stækka. Einnig er að finna í bókinni ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir ferðafólk.

Skiptist í 6 kafla
Handbókin skiptist í 6 kafla. Undir kaflanum Almennar upplýsingar má m.a. finna lista yfir upplýsingamiðstöðvar, ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur, ræðismenn, sendiráð, náttúruverndarsvæði o.fl. Annar kafli nefnist Á döfinni en eins og nafnið ber með sér er þar að finna lista yfir viðburði af ýmsu tagi um allt land. Í þriðja kaflanum, Samgöngur, eru upplýsingar um áætlunarferðir á láði, lofti og legi, leigubíla og strætisvagna. Ýtarlegar upplýsingar um Gistingu um allt land er að finna í 4. kafla og er honum skipt niður eftir tegund gistingar, þ.e. hótel, gistiheimili, bændagisting, farfuglaheimili, sumarhús, skálar og tjaldsvæði. Afþreying er í 5. kafla og skiptist í alls 23 undirflokka. Þar má nefna flúðasiglingar, hvalaskoðun, hestaferðir, jeppa- og jöklaferðir, skíðasvæði, golfvelli, sundlaugar, veiði og söfn. Leigur af ýmsu tagi eru síðan teknar fyrir í síðasta kaflanum.
Sem fyrr er gagnagrunnurinn öllum opinn á heimasíðu Ferðamálaráðs.

Mikilvægt uppflettirit
Handbókin er gefin út á íslensku og ensku og er mikilvægt uppflettirit fyrir alla þá sem starfa að skipulagningu og upplýsingagjöf í ferðaþjónustu. Bókin er seld í áskrift og kostar 6.000 kr. Afsláttur er veittur ef fleiri en eitt eintak er keypt.

Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Ferðamálaráðs Íslands á Akureyri í síma 461 2915 eða netfangið upplysingar@icetourist.is